145. löggjafarþing — 156. fundur,  23. sept. 2016.

ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

681. mál
[12:57]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Mér finnst mikilvægt að taka fram að þótt ég segi nei er ég ekki neikvæður gagnvart málinu efnislega. Ég tel þetta mikilvægt mál. Hins vegar vegna þess mikla vafa sem leikur á því hvort þetta standist stjórnarskrá, og sá vafi er stór og mikill og það hafa komið fram afdráttarlaus álit um að þetta standist ekki stjórnarskrá, verð ég að segja nei.