fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birgittu Jónsdóttur fyrir hennar spurningu. Það segir sitt um stöðu málaflokksins að samgönguáætlun fyrir árin 2015 og 2016 hefur ekki fengist samþykkt. Þess vegna gildir sú áætlun sem við ræðum hér einungis fyrir tvö ár af þeim fjórum sem hún átti að gilda fyrir. Það segir líka sitthvað um þessa samgönguáætlun, eins og hún er lögð fram af hæstv. ráðherra, að meiri hluti hv. umhverfis- og samgöngunefndar leggur til ansi viðamiklar breytingartillögur við hana þar sem meðal annars er verið að setja inn aukið fjármagn. Minni hluti hv. umhverfis- og samgöngunefndar telur það fjármagn hins vegar ekki vera nóg heldur þurfi meira til og vísar þar meðal annars í upplýsingar frá fulltrúum Vegagerðarinnar sem benda á að það þurfi miklu meira fjármagn til þess eins að vegakerfið versni ekki hreinlega eins og mundi gerast að óbreyttu. Ég treysti mér ekki til að segja hvort vilji sé til þess hjá þingmönnum meiri hlutans að samþykkja einnig tillögurnar frá (Forseti hringir.) minni hluta hv. nefndar. Mér finnst bara ekki neitt vit í öðru en að gera það, því að ekki viljum við sitja uppi með verra og hættulegra vegakerfi.