145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð.

818. mál
[18:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Frosti Sigurjónsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti og breytingartillögu frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Álitið er að finna á þingskjali 1714 og mun ég rekja efni þess í stuttu máli en breytingartillögurnar er að finna á þingskjali 1715.

Nefndinni bárust 21 erindi og hún fékk á sinn fund fulltrúa frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Landssamtökum lífeyrissjóða, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Viðskiptaráði Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Fjármálaeftirlitinu og Hallgrími Óskarssyni. Ég þakka umsagnaraðilum og gestum fyrir þeirra framlag til málsins.

Markmið frumvarpsins er að efla stuðning við kaupendur fyrstu íbúðar auk þess að skapa hvata til töku óverðtryggðra lána í samræmi við niðurstöður sérfræðinefndar um fyrstu skref til afnáms verðtryggingar. Fram kemur að frumvarpið tekur til einstaklinga sem hafa ekki verið eigendur að íbúðarhúsnæði og heimildar þeirra til skattfrjálsrar úttektar séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð. Í frumvarpinu er einnig lögð til framlenging á gildandi úrræði um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðisláns í tvö ár til viðbótar eða fram til 30. júní 2019. Frumvarpið sem hér er til umfjöllunar er í mörgu áþekkt lögum nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, þó m.a. að því undanskildu að hér eru hámarksfjárhæðirnar bundnar við einstakling ólíkt því sem er í gildandi kerfi. Í athugasemdum við frumvarpið segir að þegar á heildina sé litið geti umfang úrræðisins náð til 4.300–15.000 launþega sem gætu sparað í séreign árlega 1,3–5,2 milljarða kr. samtals eða um 13–52 milljarða kr. á tíu ára tímabili.

Loks er vert að benda á að fyrir liggur að úrræði frumvarpsins muni hafa áhrif á tekjur ríkis og sveitarfélaga til lækkunar, sérstaklega til lengri tíma litið. Í athugasemdum við frumvarpið er bent á að áhrifin á sveitarfélögin komi fyrst fram í lægri útsvarstekjum en á móti vegi óbein áhrif til hækkunar á fasteignasköttum vegna aukinna umsvifa á fasteignamarkaði. Áhrifin á afkomu ríkissjóðs eru hins vegar flóknari, bæði til lækkunar og hækkunar. Aukinn sparnaður í þessu formi rýrir tekjuskattsstofn ríkisins í einhverjum mæli, bæði hjá einstaklingum og lögaðilum, en á móti kemur lítils háttar aukning tryggingagjalds og veltuskatta vegna meiri umsvifa.

Í kjölfar ábendinga og í samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar sem ég mun nú rekja í stuttu máli.

Í 2. gr. frumvarpsins er áskilið að rétthafi eigi a.m.k. 50% eignarhlut í því húsnæði sem aflað er til að geta nýtt úrræði frumvarpsins. Bent var á að algengt sé að sambúðaraðilar eigi húsnæði í öðrum hlutföllum, t.d. 60/40, sem þýði að annar aðilinn gæti ekki nýtt sér úrræði frumvarpsins. Til að bregðast við þessu er lagt til að lágmarkseignarhlutur rétthafa verði 30% í stað 50%. Með hliðsjón af umsögnum er einnig lagt til að 5. mgr. 2. gr. falli brott en samkvæmt henni gátu þeir sem höfðu eignast hlut í íbúð við arftöku ekki nýtt úrræði frumvarpsins.

Í umsögn kom fram að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á afborgun og höfuðstól óverðtryggðs láns, í hlutföllum sem breytast yfir tímabilið, væri flókin í framkvæmd fyrir lánveitendur og einfaldara væri að hlutfallið yrði óbreytt allt tímabilið. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis frá 15. september eru tillögur um hvernig megi einfalda framkvæmdina fyrir lánastofnanir. Vísar meiri hlutinn til þeirra. Meiri hlutinn áréttar að með hugtakinu „afborgun“ í 3. gr. er átt við bæði niðurgreiðslu höfuðstóls og vexti.

Í framhaldi af ábendingum Persónuverndar leggur meiri hlutinn til að orðunum „á öruggan hátt“ verði bætt við orðalag 5. gr. þar sem fjallað er um miðlun ríkisskattstjóra á upplýsingum. Fyrir nefndinni kom fram að við fyrri aðgerðir sem tengdust útgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði hefði sérstaklega verið tiltekið í lögum að skuldheimtumönnum væri óheimilt að krefjast þess að skuldari ráðstafaði séreignarsparnaði á grundvelli laganna og lagt var til að bætt yrði sambærilegu ákvæði við fyrirliggjandi frumvarp. Því til samræmis og til að taka af öll tvímæli leggur meiri hlutinn til að bætt verði við 6. gr. ákvæði um að skuldheimtumönnum verði óheimilt að krefja skuldara um að ráðstafa séreignarsparnaði samkvæmt lögunum.

Einnig var bent á að rétt væri að gera smávægilega breytingu á 1. málslið 3. mgr. 8. gr. og bæta við orðunum „og/eða“ á eftir orðunum „starfsemi lífeyrissjóða“ þannig að ljóst væri að sá sem keypt hefði fyrstu íbúð á fyrrnefndu tímabili og nýtt sér annaðhvort ákvæði til bráðabirgða XVI eða XVII, eða bæði, félli undir ákvæðið. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og leggur til breytingartillögu þess efnis.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur til tvær lagfæringar á 9. gr. frumvarpsins sem meiri hlutinn fellst á og leggur til breytingar til samræmis.

Virðulegi forseti. Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á þingskjali 1715. Undir álit þetta rita þann 27. september 2016: Frosti Sigurjónsson, formaður og framsögumaður, Brynjar Níelsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Sigríður Andersen og Willum Þór Þórsson.

Ég mæli einnig fyrir breytingartillögu við sama mál. Í framhaldi af skoðun sem fór fram hér á nefndasviðinu kom í ljós að til samræmis væri nauðsynlegt að gera eina breytingu til viðbótar og breytir hún ekki eðli máls heldur er til lagfæringar. Breytingartillagan sem ég mæli fyrir er á þingskjali 1760 og tengist þessu sama máli, 818. Ég ætla bara að lesa hana hér upp. Hún er þannig:

„Í stað orðanna „ræða og að rétthafi eigi að minnsta kosti 50% eignarhlut í húsnæðinu“ í 2. málsl. 3. mgr. 8. gr. komi: ræða, að rétthafi afli sér íbúðarhúsnæðis annaðhvort einn eða í félagi við annan einstakling og að hann eigi að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu.“

Til útskýringar á þessu er vonandi flestum ljóst að þarna er verið að færa til samræmis við þá breytingu sem gerð var, og meiri hlutinn leggur til, að ekki sé gerð krafa um helmingseign heldur geti verið nóg að eiga 30% til að uppfylla skilyrði þessara ákvæða.

Þá er þetta komið, virðulegur forseti. Ég lýk máli mínu.