145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

afgreiðsla mála fyrir þinglok.

[11:13]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Varðandi málið sem kennt er við LÍN, Lánasjóð íslenskra námsmanna, þá liggur fyrir samkomulag um með hvaða hætti það komi hér á dagskrá. Forseti gerir ráð fyrir að það muni gerast með þeim hætti á næsta þingfundi.