146. löggjafarþing — 1. fundur,  6. des. 2016.

rannsókn kjörbréfa.

[16:07]
Horfa

Aldursforseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Við þökkum formanni kjörbréfanefndar og kjörbréfanefnd allri fyrir hennar störf. Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er umræðum þá lokið um álit og tillögur kjörbréfanefndar og er gengið til atkvæða um þær.

Það er tillaga kjörbréfanefndar að kosningin sé talin gild, svo og kjörgengi þingmanna, og að kjörbréf allra alþingismanna, svo og kjörbréf jafn margra varamanna, sem landskjörstjórn gaf út að loknum alþingiskosningum 29. október sl., séu samþykkt.

Ég ber upp í einu lagi kjörbréfin öll, þ.e. kjörbréf aðalmanna og varamanna, sem fram koma í áliti kjörbréfanefndar, og skoðast þau samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.