146. löggjafarþing — 1. fundur,  6. des. 2016.

afbrigði um sætaúthlutun.

[16:26]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Þá þarf að leita afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgrein 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og að þeir hafi sæti næst innganginum í salnum svo sem venja er til og til hægðarauka og dragi innbyrðis um þau sæti. Skoðast þau afbrigði sömuleiðis samþykkt ef enginn hreyfir andmælum. Formenn þingflokka drógu um þessi sæti sín á milli á fundi með forseta í morgun og eru sæti þeirra þessi: Birgitta Jónsdóttir hlýtur sæti 7, Hanna Katrín Friðriksson sæti 8, Björt Ólafsdóttir sæti 13, Svandís Svavarsdóttir sæti 22, Þórunn Egilsdóttir sæti 23, Oddný G. Harðardóttir sæti 44 og Guðlaugur Þór Þórðarson sæti 45.