146. löggjafarþing — 6. fundur,  19. des. 2016.

Varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þm. Norðvest., geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Gunnar I. Guðmundsson.

Kjörbréf Gunnars I. Guðmundssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni sem hann mun gera síðar þegar hann nær til fundar.