146. löggjafarþing — 11. fundur,  22. des. 2016.

kjararáð.

7. mál
[11:33]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Herra forseti. Ég styð heils hugar þá tillögu að hagsmunir þeirra sem fara með opinbert vald séu sem ljósastir. Mér þykir miður að þingheimur samþykki ekki þessa tillögu en lít svo á að með því að stjórnsýslulög séu talin eiga við um kjararáð séum við þó komin með ákveðna umgjörð um hagsmunatengsl og mögulega hagsmunaárekstra þeirra sem sitja í kjararáði.