146. löggjafarþing — 15. fundur,  24. jan. 2017.

tilkynning um stjórnir þingflokka.

[13:36]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins þannig að Birgir Ármannsson er formaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er varaformaður og Valgerður Gunnarsdóttir er ritari.

Einnig hefur borist tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Bjartrar framtíðar þannig að Theodóra S. Þorsteinsdóttir er formaður og Nichole Leigh Mosty er varaformaður.