146. löggjafarþing — 16. fundur,  24. jan. 2017.

kosning í fastanefndir skv. 13. gr. þingskapa.

[13:49]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Áður en ég gef hv. þm. Birgi Ármannssyni orðið er rétt að taka fram að það er ekki sameiginleg tillaga frá þingflokkum um skipan nefnda og fer því kosning þeirra fram samkvæmt 3. mgr. 14. gr. Ég tel rétt að þetta komi fram áður en hv. þingmenn tjá sig um kosninguna.