uppfylling kosningaloforða.
Frú forseti. Ég þakka svarið en mér finnst það þunnt og í rauninni jaðra við útúrsnúning. Mig langar að spyrja aftur: Eru þingmenn Bjartrar framtíðar bundnir á einhvern hátt í stjórnarsamstarfinu til að greiða atkvæði um mál sem þeir lofuðu fyrir kosningar, þvert á það sem þeir lofuðu, eða á einhverjum ákveðnum tímapunkti kjörtímabilsins? Þetta skiptir máli. Nú heita loforð allt í einu áform, ég man ekki hvað hæstv. heilbrigðisráðherra sagði, en mér finnst skipta máli að vita hvort það er vegna þess að ef við ætlum að eiga samstarf, minni hluti og meiri hluti, þurfum við að vita hvort það er til einhvers að varpa fram málum. Ég skal fullyrða að við munum koma með ykkur í þau mál sem við lofuðum fyrir kosningar komi þau fram. Ég vil fá að vita: Viljið þið gera það?