146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

uppfylling kosningaloforða.

[15:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf):

Virðulegur forseti. Ég skal reyna að svara hv. þingmanni skýrar. Þingmenn Bjartrar framtíðar, eins og aðrir þingmenn á þingi, eru bundnir sannfæringu sinni þegar kemur að stuðningi við mál eða synjun. Það er svo einfalt. Þau áherslumál, eins og ég orðaði það, eða kosningaloforð eins og margir myndu kalla það, sem okkar flokkur lagði fram í kosningum eru áhersluatriði flokksins og þau atriði sem við komum með inn í starfið á Alþingi. Svo ég ítreki það erum við auðvitað í ríkisstjórnarsamstarfi þar sem hefur verið samið um áherslu í stjórnarsáttmála. Hann liggur fyrir og er opinber og við stöndum við hann. Hann er ekki allur úr kosningaloforðalista mínum heldur er hann sameiginlegar áherslur flokkanna sem hafa ákveðið að vinna saman. Það fer mjög mikið eftir því hvaða mál eru undir hver afstaðan verður og hvenær á kjörtímabilinu það verður. (Forseti hringir.) En ég skal fullvissa hv. þingmenn um það að við munum styðja við góð mál eins og við mögulega getum á þingi eins og aðrir.