146. löggjafarþing — 19. fundur,  26. jan. 2017.

tilkynning.

[14:34]
Horfa

Forseti (Jóna Sólveig Elínardóttir):

Á fundi utanríkismálanefndar fyrr í dag var Jóna Sólveig Elínardóttir kjörin formaður nefndarinnar, Vilhjálmur Bjarnason 1. varaformaður og Bryndís Haraldsdóttir 2. varaformaður

Á fundi Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES var Hanna Katrín Friðriksson kjörin formaður nefndarinnar og Vilhjálmur Bjarnason varaformaður.