146. löggjafarþing — 19. fundur,  26. jan. 2017.

Lífeyrissjóður bænda.

67. mál
[16:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Benedikt Jóhannesson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um brottfall laga um Lífeyrissjóð bænda, nr. 12/1999, með síðari breytingum. Frumvarpið er efnislega samhljóða frumvarpi sem mælt var fyrir á Alþingi á síðasta löggjafarþingi. Frá gildistöku laga nr. 12/1999 hefur Lífeyrissjóður bænda starfað með því markmiði og skipulagi sem greinir í lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, sérlögum um sjóðinn og samþykktum fyrir hann.

Í núgildandi lögum um sjóðinn er kveðið á um heimild til handa ríkissjóði til að greiða mótframlag sjóðfélaga í Lífeyrissjóði bænda. Allt frá stofnun sjóðsins árið 1970 greiddi ríkissjóður að hluta eða í heild framlag á móti iðgjaldi sjóðfélaga en framlagið var ákveðið í fjárlögum hvers árs og reiknað á grundvelli afurðaverðs samkvæmt búvörusamningi. Í kjölfar efnahagshrunsins voru framlög úr ríkissjóði til lífeyrissjóðsins felld brott í áföngum og frá upphafi árs 2013 hefur iðgjaldið til lífeyrissjóðsins verið greitt af sjóðfélögum að fullu líkt og almennt gildir um þá sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Í ljósi þessara breyttu forsendna þykir ekki ástæða til að sérlög gildi um sjóðinn.

Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að lög um Lífeyrissjóð bænda falli brott 1. janúar 2018.

Í 2. gr. er lagt til að núverandi stjórn sjóðsins hafi frumkvæði að því að aðlaga samþykktir sjóðsins ákvæðum laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og leggi þær þannig breyttar fyrir fjármála- og efnahagsráðherra til samþykktar eigi síðar en 1. október næstkomandi. Þannig er gert ráð fyrir því að staðfestar samþykktir fyrir sjóðinn liggi fyrir um leið og lögin falla úr gildi þann 1. janúar 2018 og að ný stjórn taki við á grundvelli staðfestra samþykkta fyrir sjóðinn.

Í 3. gr. er lagt til að kveðið verði á um að ríkissjóður ábyrgist útgjöld vegna lífeyrisgreiðslna sjóðfélaga sem fæddir eru 1914 eða fyrr eða útgjöld vegna lífeyrisgreiðslna til maka þeirra. Um er að ræða áunnin réttindi sjóðfélaga eða maka hans sem ríkissjóður ábyrgist en útgjöld ríkissjóðs vegna umræddrar ábyrgðar námu um 12,7 milljónum á árinu 2016 miðað við 14,7 milljónir á árinu 2015.

Að lokum er í 4. gr. frumvarpsins lagt til að lögin öðlist þegar gildi.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.