146. löggjafarþing — 20. fundur,  31. jan. 2017.

sjúkratryggingar.

80. mál
[15:16]
Horfa

Frsm. velfn. (Nichole Leigh Mosty) (Bf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 77/2016, um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, um frestun gildistöku frá velferðarnefnd.

Í stað orðanna „1. febrúar 2017“ í 3. gr. laganna kemur: 1. maí 2017.

2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samkvæmt lögum nr. 77/2016 verður nýtt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar tekið upp 1. febrúar 2017. Kerfið miðar að því að sjúkratryggðir þurfi ekki að greiða meira en nemur ákveðinni hámarksfjárhæð fyrir heilbrigðisþjónustu í hverjum mánuði sem ákvörðuð verður með reglugerð. Sett verður ákveðið mánaðarlegt greiðsluþak á greiðslur sjúkratryggðra og kostnaður umfram greiðsluþakið greiðist af sjúkratryggingum. Þannig er stefnt að því að verja sjúklinga fyrir mjög háum greiðslum fyrir heilbrigðisþjónustu.

Síðustu mánuði hefur verið unnið að undirbúningi að innleiðingu nýs greiðsluþátttökukerfis í ráðuneytinu og víðar. Til að tryggja farsæla innleiðingu kerfisins þarf að huga að mörgum þáttum, svo sem vinnu við tölvukerfi, forritun og tengingum á milli kerfa. Innan kerfisins þarf að miðla mikið af upplýsingum milli veitenda þjónustunnar og til Sjúkratrygginga Íslands. Við undirbúning á gildistöku laganna og í opnu samráðsferli um reglugerðir sem setja þarf til að innleiða kerfið hefur komið í ljós að undirstofnanir ráðuneytisins og aðrir veitendur heilbrigðisþjónustu þurfa lengri tíma til að undirbúa kerfisbreytinguna. Vandamál snúa fyrst og fremst að tæknilegum útfærslum svo sem nauðsynlegum hugbúnaðarbreytingum, tengingum á kerfum á milli stofnana og framkvæmd viðeigandi villuprófana áður en kerfið verður tekið í notkun. Því er talið nauðsynlegt að fresta gildistöku laganna fram til 1. maí.

Við í velferðarnefnd erum sammála um að við munum fylgjast náið með undirbúningi málsins fram að gildistöku og leggjum ríka áherslu á að lögin í heild sinni komi til framkvæmda 1. maí.