146. löggjafarþing — 22. fundur,  31. jan. 2017.

þingnefnd um alþjóðlega fríverslunarsamninga.

79. mál
[16:20]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég skil það sem svo, og hv. þingmaður leiðréttir mig þá ef rangt er með farið, að það sé ekki heildarstefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að vera á móti gerð slíkra samninga almennt, en hins vegar vilji þeir vanda vel til verka ef það er gert. Ég skildi alla vega svar hennar með þeim hætti. Hv. þingmaður hefur þá tækifæri til að leiðrétta það í seinna andsvari ef ástæða er til.