146. löggjafarþing — 24. fundur,  2. feb. 2017.

stjórn fiskveiða.

83. mál
[13:50]
Horfa

Flm. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum. Frumvarpið fjallar um útboð á viðbótarþorskkvóta. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þm. Logi Einarsson og Guðjón S. Brjánsson.

1. gr. hljóðar svona:

„Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Ef heildarafli þorsks verður aukinn fyrir fiskveiðiárið 2017/2018, sbr. 1. mgr. 3. gr., skal ráðherra bjóða þann viðbótarkvóta út til hæstbjóðanda. Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um framkvæmd útboðsins.“

Frumvarp sama efnis var lagt fram á síðasta þingi. Þá voru meðflutningsmenn mínir úr þingflokki Samfylkingarinnar, Pírata og Bjartrar framtíðar. Nú er það lagt fram að nýju, lítillega breytt.

Sú lagabreyting sem hér er lögð til byggist á því að við úthlutun veiðiheimilda sé æskilegast að lögmál markaðarins ráði við nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Í útfærslu tilboðsleiðarinnar skal setja reglur sem taka tillit til byggðasjónarmiða, koma í veg fyrir samþjöppun og virða sérstöðu minni útgerða. Beinast liggur við að nota tilboð og tilboðsmarkaði þegar kvóta tiltekinnar fisktegundar er útdeilt eða viðbótartonnum samkvæmt tillögum Hafrannsóknastofnunar. Ólíklegt er að sátt náist um upphæð veiðigjalds fyrr en það verður ákvarðað á markaðslegum forsendum.

Einn af kostum tilboðsleiðar er að leigugjald sem greitt er fyrir aflahlutdeildir sveiflast sjálfkrafa með arðsemi veiða og dregur úr líkum á pólitískum inngripum um ákvörðun leiguverðs. Þannig byggist upphæð leigugjalds ekki á matskenndum ákvörðunum og eigendur auðlindarinnar, fólkið í landinu, geta treyst því að ekki sé verið að hygla einum umfram annan. Útgerðin ákvarðar sjálf það gjald sem hún telur sér fært að greiða fyrir aðgang að auðlindinni með tilboðum á markaði og það kemur líka í veg fyrir brask með kvótann. Einnig styrkir tilboðsleiðin rekstrarumhverfi sjávarútvegsins til lengri tíma vegna þess að duttlungar stjórnmálamanna ráða ekki með ófyrirséðum breytingum frá einu kjörtímabili til annars.

Svigrúm innan kerfisins verður meira með tilboðsmörkuðum og nýliðun möguleg sem veitir best reknu fyrirtækjunum aukin tækifæri hvort sem þau eru gömul eða ný. Í útfærslu tilboðsleiðar er auðvelt að taka tillit til byggðasjónarmiða, koma í veg fyrir samþjöppun og virða sérstöðu minni útgerða. Reynsla af tilboðsleið til úthlutunar auðlinda er víðtæk um allan heim og auðvelt væri að leita í smiðju nágrannaþjóða, svo sem til Færeyinga og Norðmanna, eftir góðum fyrirmyndum. Ef rétt er á málum haldið leiðréttir tilboðsleiðin óréttlætið sem felst í því að ávinningur af hagræðingu innan útgerðarinnar renni í vasa fárra en íbúar sjávarbyggða beri kostnaðinn.

Fiskmarkaðir á Íslandi eru góðar fyrirmyndir þar sem markaðslausnir ráða. Þar kaupa fiskvinnslur án kvóta fisk daglega á tilboðsmarkaði. Þessi fyrirtæki hafa enga aðra rekstrartryggingu en þá að tilboðsmarkaðurinn verði starfandi á morgun. Aldrei er deilt um fiskverð á fiskmarkaði enda hafa kaupandi og seljandi komið sér saman um verð. Allar fiskvinnslur landsins hafa jafnan aðgang að fiskmörkuðum. Nýliðun í fiskvinnslu er því miklu auðveldari en í útgerðinni.

Fleiri góð dæmi má nefna. Loftslagsheimildir eru boðnar út og íslensk flugfélög, álver og fleiri verksmiðjur gera tilboð í loftslagsheimildir á evrópskum markaði en tekjurnar renna í ríkissjóð. Stuðst er við útboð til að velja á milli símafyrirtækja þegar úthluta þarf tíðnisviðum fyrir fjarskipti og þegar ríkið felur einkaaðilum verkefni í samgöngum eru gerð tilboð í sérleyfin. Þegar landsmenn kaupa þak yfir höfuðið eru gerð tilboð á markaði sem stýrt er af fasteignasölum. Það er því góð og víðtæk reynsla af tilboðsleiðinni í ýmsum myndum og hún á mjög vel við þegar úthluta á takmörkuðum gæðum, svo sem náttúruauðlindum.

Nú geta þeir sem fá úthlutaðan kvóta stungið fullu veiðigjaldi í eigin vasa með því að selja og leigja kvóta til þriðja aðila. Sem dæmi má nefna að kvótalitlar útgerðir hafa þurft að greiða stærri útgerðum um 200 kr. fyrir kílóið af þorski í veiðigjald á meðan ríkið innheimtir aðeins 13 kr. í veiðigjald samkvæmt fréttum frá Fiskistofu. Þetta er sláandi munur.

Niðurstöður Hafrannsóknastofnunar úr stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum árið 2016 voru kynntar 20. apríl sl. Niðurstöður stofnmælinga eru mikilvægur þáttur árlegrar úttektar Hafrannsóknastofnunar á ástandi nytjastofna við landið. Mælingarnar frá því í mars bentu til góðs ástands helstu botnfiskstegunda og horfur eru á aukinni nýliðun í veiðistofnum þorsks og ýsu á næstu fiskveiðiárum. Lokaúttekt á niðurstöðum og tillögur Hafrannsóknastofnunar um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár voru síðan kynntar í byrjun júní sl.

Fiskveiðikerfinu þarf að breyta í heild sinni en hægt er að taka strax skref í rétta átt. Þorskkvótinn var aukinn á síðasta fiskveiðiári um 21 þús. tonn og á yfirstandandi fiskveiðiári um 5 þús. tonn en alls er aukningin 114 þús. tonn frá fiskveiðiárinu 2007/2008 og er nú í 244 þús. tonnum. Á þessum tíma, frá fiskveiðiárinu 2007/2008, hefur þorskveiðikvótinn því nánast tvöfaldast. Viðbótin hefur runnið til þeirra sem eru fyrir á fleti.

Mælingar Hafrannsóknastofnunar benda til að kvótinn verði enn aukinn á næstu fiskveiðiárum. Ef Hafrannsóknastofnun gerir tillögu um viðbótarþorskkvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 gerir lagabreytingin kleift að bjóða aukninguna út til hæstbjóðenda. Reglur um útboð, sem taka tillit til byggðasjónarmiða, koma í veg fyrir samþjöppun og virða sérstöðu minni útgerða, verði síðan settar með reglugerð. Með því fengist reynsla í framkvæmd útboða af þessu tagi ásamt markaðsverði aflaheimilda.

Virðulegur forseti. Í umræðum fyrir kosningar var heilmikið talað um veiðigjöld, lækkun á þeim, hvernig mætti finna réttlætið og réttlætiskenndina hjá eigendum auðlindarinnar og um útboðsleiðina í því sambandi. Tveir af ríkisstjórnarflokkunum töluðu heilmikið um þetta og það var kosningaloforð þeirra að koma þessari kerfisbreytingu á. Það fer að vísu ekkert fyrir því í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en þó að ég og minn þingflokkur viljum kerfisbreytingu í heild er þetta skref sem við leggjum til sem er aðeins viðbótarkvóti. Við leggjum þetta til vegna þess að þetta er viðráðanlegt skref og með því fengist reynsla. Þá gætum við á grundvelli þeirrar reynslu ákveðið hvernig hlutirnir ættu að vera og hvaða skref mætti taka í framtíðinni. Þetta er mjög sanngjörn tillaga. Ég vona að hún fái skjótan framgang í hv. atvinnuveganefnd og síðan afgreiðslu í þingsal.

En eins og ég sagði áðan eru tveir af ríkisstjórnarflokkunum með það á sinni stefnuskrá að bjóða út aflaheimildir. Þeir eru að vísu ekki margir þingmennirnir í þingsalnum frá þessum flokkum. Ég sé að hér er einn hv. þingmaður úr Viðreisn. Ég vona að hann taki til máls. Ég vona að þeir flokkar sem hafa haft þetta á sinni stefnuskrá, þetta réttlætismál, leggi þessu litla sanngjarna skrefi lið sitt þannig að það fáist samþykkt hér í þingsal.