146. löggjafarþing — 28. fundur,  9. feb. 2017.

almenn hegningarlög.

101. mál
[14:12]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég játa að ég skil ekki fullkomlega hvers konar afstöðu hv. þingmaður er að sækjast eftir. Ég mun ekki mæla fyrir lögum sem sekta fólk fyrir að hrósa erlendum þjóðhöfðingjum, jafnvel þótt þeir eigi það ekki skilið. Það er nú svo. Ég held að ég hafi þetta ekki lengra að sinni.