146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

um fundarstjórn.

[13:34]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir ágætlega skemmtilega ferð um Suðurlandið í síðustu viku, en langaði samt til að beina athygli að því að dagskrá morgundagsins liggur ekki fyrir og ekki liggur fyrir dagskrá út vikuna. Það er, eins og svo oft áður, mjög erfitt að undirbúa sig fyrir vikuna ef dagskrá liggur ekki fyrir. Það væri afskaplega notalegt ef dagskrá út vikuna lægi að jafnaði fyrir.