146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[17:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Nichole Leigh Mosty) (Bf) (andsvar):

Breytingar voru bara birtar fyrir einum degi, sólarhring. Prinsipp, ég skil hvert hv. þingmaður er að fara með það, en ég óska eftir að þú lesir þessi lög upphaflega eins og þau eru sett fram hér án þeirra skýringa sem ég hef sett fram og ræði um væntingar til þess að fá þessa greiðslu. Margir sérfræðingar hafa komið að þessu máli, bæði hagsmunaaðilar, sem þú nefnir að hafi haft væntingar, og þeir sem eiga að verja þá peninga sem ekki eru í fjárlögum fyrir þessu, og komist að þeirri niðurstöðu að aldrei hafi verið um að ræða væntingar í þessu sambandi.

Hvað varðar álit: Þetta er í málsmeðferð núna og það munu verða frekari álit.