146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[17:21]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég sagði er ég svo sannarlega fylgjandi því að þessi mistök verði leiðrétt. Mér finnst óþægilegt að leiðrétta afturvirkt. En mér skilst að við munum fá frekari álit og gesti til nefndarinnar, sem er mjög gott. Kannski kemur eitthvað í ljós þar sem á eftir að breyta skoðun minni. En eins og staðan er akkúrat núna finnst mér þetta óþægilegt af því að mér finnst ég ekki skilja almennilega hvort rétt sé að gera þetta eða ekki.