146. löggjafarþing — 31. fundur,  23. feb. 2017.

dagskrá næsta fundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Eins og tilkynnt var á þingfundi í gær hefur forseta borist dagskrártillaga svohljóðandi:

„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:

1. Óundirbúnar fyrirspurnir.

2. Kjararáð (lækkun launa til samræmis við launaþróun frá 2013) – frv. (JÞÓ), 189. mál, þskj. 260. – 1. umr. Ef leyft verður.

Ásamt öðrum dagskrármálum sem forseti Alþingis leggur til.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf rita Jón Þór Ólafsson, Gunnar I. Guðmundsson, Smári McCarthy, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Halldóra Mogensen og Einar Brynjólfsson.

Fer nú fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.