146. löggjafarþing — 34. fundur,  27. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[20:37]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að vera alveg hreinskilin. Ég skrifaði undir drengskapareiðinn, að ég myndi alltaf vera heiðarleg í mínum svörum, og hér stend ég fyrir framan þig og segi: Ég get ekki sagt já eða nei við því, af því að ég veit það ekki. Ég er ansi hrædd um þessa stöðu sem við erum í hérna, en ég ætla að vera alveg heiðarleg við þig og segi því: Ég get ekki svarað spurningum þínum.