146. löggjafarþing — 41. fundur,  8. mars 2017.

orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.

[15:23]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Frú forseti. Það er dálítil samkeppni í gangi um að ræða þetta tiltekna mál hæstv. fjármálaráðherra. Hv. þm. Einar Brynjólfsson hefur ámálgað að hér komi einhver upp frá flokki hæstv. fjármálaráðherra og skýri afstöðu sína. Það væri þá gaman að fá fulltrúa hinna samstarfsflokkanna. Hér situr til hliðar hv. þm. Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það væri gaman að heyra frá honum, enn fremur einhverjum hv. þingmanni frá Bjartri framtíð.