146. löggjafarþing — 51. fundur,  30. mars 2017.

fjármálastefna 2017--2022.

66. mál
[14:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég viðurkenni að ég kannast ekki við þetta fyrirbæri, kynslóðareikninga. En mér finnst þetta mjög forvitnilegt og langar til þess að vita meira. Þar sem hv. þingmaður getur komið aftur í ræðustól þætti mér vænt um að hún myndi kynna það aðeins fyrir mér þannig að ég geti betur svarað hvað mér finnst um þetta.