146. löggjafarþing — 52. fundur,  3. apr. 2017.

mismunandi áherslur í ríkisstjórn.

[15:43]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ef allir fætur kóngulóarinnar hefðu sjálfstæðan vilja væri sú skepna líklega útdauð. Þökk sé skaparanum er hún þannig úr garði gerð að hún samhæfir fótaburðinn. Skaparinn kom hins vegar ekkert að myndun þessarar ríkisstjórnar. Ráðherrar og stjórnarliðar hlaupa nú út og suður, hver í sína áttina, og lítil regla er á galskapnum. Við vitum að Bob Dylan, Beyoncé, Kristinn Sigmundsson og Björk eru öll magnaðir söngvarar en væru sennilega ekki góð saman í kór, alla vega ekki ef þau útsettu eigin lög og veldu lögin sjálf.

Hv. þingmenn eru ósammála um grundvallaratriði. Benedikt Jóhannesson og Haraldur Benediktsson um tímasetningu bankasölu. Nichole Leigh Mosty og Kristján Þór Júlíusson um 25 ára regluna. Theodóra Þorsteinsdóttir og Brynjar Níelsson um rannsókn á einkavæðingu Landsbankans. Teitur Björn Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir um sjávarútvegsstefnuna. Jón Steindór Valdimarsson og Óli Björn Kárason um ESB-umsókn. Páll Magnússon og Hanna Katrín Friðriksson um landbúnaðarmálin. Sigríður Andersen og Óttarr Proppé um rekstur heilbrigðiskerfisins. Björt Ólafsdóttir og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir um ívilnunarsamninga stóriðju. Jóna Sólveig Elínardóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson um EES-samninginn. Og loks Þorsteinn Víglundsson og Sigríður Andersen um jafnlaunavottun. Ég gæti haldið áfram.

Á síðasta ársfundi Seðlabankans sagði forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Endurskoðunin gengur út frá þeirri forsendu að krónan verði í næstu framtíð gjaldmiðill Íslendinga.“

Og í nýlegu viðtali við Suðra sagði fjármálaráðherra, með leyfi forseta:

„Það hefur aftur á móti ekki verið neinn vafi í mínum huga að farsælast fyrir okkur Íslendinga væri að taka upp evru.“

Er hæstv. fjármálaráðherra ánægður með fótaburð ríkisstjórnarinnar? Hefur þessi ósamhæfni gert að verkum að mál hafa komið seint og illa hingað inn? Finnst ráðherranum yfir höfuð trúverðugt að leggja fram fimm ára fjármálastefnu núna þegar stjórnarliðar eru ósammála í grundvallaratriðum og hægra og vinstra heilahvelið geta ekki komið sér saman um hvaða peninga á að nota?