146. löggjafarþing — 53. fundur,  3. apr. 2017.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2017 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.

361. mál
[19:15]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get fullyrt það, það er 100%, að hv. þingmaður er ekki fyrsti þingmaðurinn sem fer í ræðustól og er ekki viss. En munurinn á hv. þingmanni og öðrum mörgum sem koma hingað og eru ekki vissir er að hún gat þess sérstaklega en margir sleppa því alveg. Ég held að hérna fari saman hljóð og mynd. En ég er hins vegar alveg sammála hv. þingmanni að auðvitað er það þannig þegar menn taka þetta allt saman í einni runu að málin geta runnið saman. Núna held ég að við séum á réttum stað í þessu ágæta máli.