146. löggjafarþing — 53. fundur,  3. apr. 2017.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2017 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.

361. mál
[19:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Við tökum hérna aðra umræðu um þetta ágæta mál. Þessi mál eru með nákvæmlega sama heiti en það munar samt einni tölu, og það er alveg nóg, þegar kemur að númeri á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2017 sem mæli fyrir um að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 2013 um endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera verði tekin upp í EES-samninginn.

Með þessari tilskipun eru gerðar breytingar á eldri tilskipun um sama efni. Í fyrri tilskipun voru settar ákveðnar lágmarksreglur um endurnotkun opinberra upplýsinga. Hins vegar hefur framkvæmdin í þessum efnum verið mjög mismunandi eftir EES-ríkjunum og þótti því ástæða til að skerpa á þeim reglum sem gilda um endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera þar sem mismunandi reglur á þessu sviði hafa leitt til hindrana í viðskiptum með vörur og þjónustu.

Meginreglan í þessari tilskipun er sú að heimilt verði að endurnota öll þau gögn sem almenningur hefur rétt til aðgangs að samkvæmt upplýsingalögum. Þegar talað er um endurnotkun í þessu samhengi er átt við að einstaklingum og fyrirtækjum skal vera heimilað að nota upplýsingar sem hið opinbera býr yfir og almenningur hefur rétt á aðgangi að, t.d. til þess að skapa úr slíkum gögnum vöru eða þjónustu sem selja má í hagnaðarskyni. Á þetta eru þó settar vissar takmarkanir. Mikilvægast þeirra er sú að þessi réttur nær eðlilega ekki til gagna sem eru varin höfundarétti. Þá fela reglur um vernd persónuupplýsinga í sér takmarkanir á notkun persónugreinanlegra upplýsinga. Þá ber að geta þess að stjórnvöldum er heimilt að krefjast eðlilegs endurgjalds á slíkri endurnotkun ef hún felur í sér kostnað fyrir opinbera aðila.

Í dag eru reglur um endurnotkun opinberra upplýsinga að finna í VII. kafla upplýsingalaga. Innleiðing tilskipunar mun því kalla á breytingar á þeim lögum og er að vænta frumvarps um innleiðingu tilskipunar næstkomandi haust. Ákvörðun var því tekin með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands í sameiginlegu EES-nefndinni. Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis ber að aflétta slíkum fyrirvara með þingsályktunartillögu. Því er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst svo aflétta megi hinum stjórnskipulega fyrirvara.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.