146. löggjafarþing — 54. fundur,  4. apr. 2017.

hlutafélög og einkahlutafélög.

410. mál
[17:26]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og lagt er til í þessu frumvarpi snýr það eingöngu að einkahlutafélagaforminu til þess að byrja og í framhaldinu verði bætt við fleiri félagaformum. Ef ég skildi hv. þingmann rétt er hann að spyrja um hlutafélagaformið sem er þá (Gripið fram í: Bæði.) — almennt sagt þá er ég sömuleiðis talsmaður þess að hlutir sem óhætt er að birta og hægt er að hafa opinbera fyrir almenning séu það. En nákvæmara svar get ég eiginlega ekki gefið í þessu. Væntanlega mun hv. þingmaður fara yfir þetta í nefndinni og við getum tekið það til nánari skoðunar þá.