146. löggjafarþing — 57. fundur,  6. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[17:15]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir) (S):

Hæstv. forseti. Það hvað ekki er að finna í fjármálaáætlun get ég ekki talað mig út um hér sem staðgengill ráðherra. Varðandi gjafsóknina þá er spurningin sömuleiðis þess eðlis að ég get ekki svarað því, ég veit ekki hvaða sýn dómsmálaráðherra hefur á gjafsókn, hvort hækka þurfi viðmiðin og hvort hún sé sammála hv. þingmanni eða ekki. En ég skal lofa því að skilaboðin munu fara til hennar á réttan stað. Ég vona að hv. þingmaður og ráðherra muni geta átt samtal um þessi mál.