orð heilbrigðisráðherra um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Ég þakkaði hæstv. heilbrigðisráðherra eftir ræðurnar 23. mars sérstaklega fyrir þau skýru svör sem hann gaf í þeim ræðum sem hann flutti sem svör við spurningum hv. þingmanna. Þar sagði hann m.a., með leyfi forseta, „að ég segi að ég muni ekki standa fyrir sérstökum einkarekstri eða einkavæðingu á heilbrigðiskerfinu án þess að það séu stórkostlegar umræður eða undirbúningur undir slíkt“. Nú verður maður að staldra aðeins við og íhuga málið þegar landlæknir leiðréttir þennan misskilning sem okkur er fluttur. Mér finnst erfitt að hafa þakkað hæstv. ráðherra fyrir skýrt mál, skýr svör þegar þau reynast svo ekki sönn.