kennaraskortur í samfélaginu.
Virðulegi forseti. Ég þakka þá umræðu sem hér hefur átt sér stað. Hún ber með sér að viðfangsefnið er þingmönnum mjög hugleikið. Flestir eru allir af vilja gerðir til þess að leggja því lið að bregðast við með einhverjum hætti. Það kemur ágætlega fram í umræðum hér hvert verkefnið er. Það endurspeglaðist ágætlega í orðum hv. þm. Pawels Bartoszeks þar sem hann nefndi muninn á skráningu nýnema á þessu sviði. Aðsóknin hefur dregist saman um 600 nemendur á árabilinu 2009–2016 á sama tíma og háskólanemum almennt hefur fækkað um 1.600, ef ég hef tekið rétt eftir. Með sama hætti endurspeglast það ágætlega í orðum hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar um að vandinn sé ekki eingöngu bundinn við kennara heldur snerti hann líka aðra þætti námsins. Aðsókn í hinar mismunandi tegundir náms er að breytast. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi sérstaklega tungumálanámið, sem er gríðarlega mikið áhyggjuefni hvernig farið hefur með og hvernig það hefur þróast.
Ég vil líka undirstrika að það eru töluverður munur á milli sveitarfélaga. Hv. þm. Nichole Leigh Mosty talaði um leikskólakennara. Þetta er ekki vandamál í sumum sveitarfélögum. Við þurfum þá að draga lærdóm af því hvernig við höfum hagað málum í þeim sveitarfélögum, ég nefni hið ágæta sveitarfélag Akureyri, einnig Akranes og Ölfus. Hvað hefur verið gert þar sem veldur þeirri stöðu sem þar er t.d. í leikskólamálum? Við þurfum halda því til haga.
Eins og ég lýsti í ræðu minni áðan er ráðuneytið að vinna í þessum efnum. Settur hefur verið starfshópur. Það er ágætissamstarf á milli allra hagsmunaaðila. Af því að hv. málshefjandi Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nefndi áðan að við yrðum að bregðast við sem skjótast og vera í sem nánustu samstarfi þá hefur ráðuneytið sem betur fer átt í ágætu samstarfi við (Forseti hringir.) Kennarasambandið, Samtök sveitarfélaga o.s.frv. þótt vissulega greini menn stundum á um leiðir.
Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að menn muni leggja saman í þá vegferð sem nauðsynleg er og var í rauninni fyrirsjáanleg hvernig myndi þróast þegar (Forseti hringir.) lögunum var breytt árið 2008. Ég er ekki á því að minnka kröfurnar til námsins, bara svo það sé sagt, en að sjálfsögðu þurfum við að skoða alla þætti þessa máls.