146. löggjafarþing — 59. fundur,  25. apr. 2017.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

436. mál
[21:27]
Horfa

Andri Þór Sturluson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þá langar mig að taka þetta aðeins lengra og spyrja um grínista almennt Nú er uppistand orðið töluvert vinsælt hér á landi. Við vorum t.d. með Ricky Gervais um daginn. Gæti hann á einhvern hátt brotið gegn einhverju hér? Nú spyr mér bara mér til fróðleiks, ég er ekki að gagnrýna neitt. Mig langar að vita hvort grínistar almennt geti brotið gegn þessu.