146. löggjafarþing — 60. fundur,  26. apr. 2017.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hafa tvö bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 462, um verðmæti veiða í ám og vötnum, og fyrirspurn á þskj. 465, um sjókvíaeldi og vernd villtra laxfiska, báðar frá hv. þm. Bjarna Jónssyni.