146. löggjafarþing — 60. fundur,  26. apr. 2017.

ívilnanir til United Silicon.

[15:10]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég segi það hér að ég veit ekki hver þessi tala er, en biðla til þingmannsins að annaðhvort senda óformlegt erindi til mín eða ráðuneytisins eða óska eftir skriflegri fyrirspurn til skriflegs eða munnlegs svars þar sem er hægt að taka þetta saman. En ég hef ekki svar á reiðum höndum.