146. löggjafarþing — 61. fundur,  2. maí 2017.

farþegaflutningar og farmflutningar.

128. mál
[20:56]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, hér er hart spurt. Það er auðvitað einhver ástæða fyrir því að orðalagið er með þessum hætti. Hins vegar er þetta mjög góðar ábendingar. Ég ætla ekki að svara því akkúrat á þessari stundu, það er þá eitthvað sem nefndin mun ræða sín á milli hvort ástæða er til þess að gera breytingar þarna á fyrir 3. umr.