146. löggjafarþing — 62. fundur,  3. maí 2017.

landgræðsla.

406. mál
[19:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ráðherrann er miður sín yfir villum tveim. Það voru tvær villur sem ég fann við það að fletta hratt í gegnum frumvörpin tvö. Ráðherrann virðist þess fullviss að þær séu aðeins tvær og einungis tvær, en vill samt til öryggis að nefndin verji tíma sínum í að lúslesa frumvörpin til að vera viss um að þær séu ekki fleiri. Ég treysti mér ekki til að segja að þær séu fleiri eða færri. Þær eru tvær og það að rugla saman frumvörpum þegar þau eru lögð fram er engin smá innsláttarvilla. Það að ætlast til þess að þingnefnd vinni starf ráðuneytis við að leiðrétta villur þykir mér ofrausn á þessum tíma á þingárinu.