146. löggjafarþing — 63. fundur, 4. maí 2017.
farþegaflutningar og farmflutningar.
128. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka nefndarmönnum fyrir mjög góða og samstæða vinnu við þetta frumvarp. Það er alveg rétt sem hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson segir, við óskum eftir að frumvarpið komi aftur inn í nefnd fyrir 3. umr. en á þessari stundu er þetta sem hann vísar til hér einungis til umræðu og engin ákvörðun hefur verið tekin. Við viljum gjarnan fá frumvarpið inn aftur.