146. löggjafarþing — 69. fundur,  23. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[21:02]
Horfa

Theodóra S. Þorsteinsdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég heyrði umræðuna hér áðan, en þessi umræða fór ekki fram í fjárlaganefnd. Hún er að koma fyrst fram hérna núna inni í þingsal. Við fjölluðum einungis um rammann í fjárlaganefnd. Hversu niðurgreinanlegar þær upplýsingar eru er nokkuð óljóst þannig að ég bind vonir við að hæstv. fjármálaráðherra geti svarað fyrir varðandi þá greiningu sem kemur hérna fram. Ég ætla því ekki að tjá mig meira um það í bili.