146. löggjafarþing — 71. fundur,  24. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[22:58]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér í þessari sundurliðun ríkisstjórnar hef ég fengið aðstoð frá einum af mínum kollegum í hinum flokkunum. Hérna er um misskilning að ræða. Allar tölur um útgjaldaramma eru á verðlagi ársins 2017. Þær koma því til með að hækka á hverju ári í samræmi við launa- og verðlagsbreytingar. Þær hækkanir verða væntanlega í samræmi við hagvöxt. Við erum því að tala um 8,8% vöxt sjúkrahúsþjónustu fyrir utan allar hagvaxtar- og verðlagshækkanir.