146. löggjafarþing — 72. fundur, 26. maí 2017.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá Jóni Steindóri Valdimarssyni, 13. þm. Suðvest., þar sem fram kemur að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Fimmtudaginn 25. maí tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir.
Kjörbréf hennar hefur verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, 13. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]