146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

varamenn taka þingsæti.

[10:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Suðvest., Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og 9. þm. Suðvest., Eygló Harðardóttur, um að þær geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi fyrir þær 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Bjarni Halldór Janusson, og 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, Willum Þór Þórsson.

Bjarni Halldór Janusson og Willum Þór Þórsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru þeir boðnir velkomnir til starfa að nýju.