146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

röð mála til umræðu.

[15:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Við erum með 39 mál á dagskrá. Þegar verið er að hoppa svona yfir dagskrárliði fram og til baka er mjög erfitt fyrir fólk að detta inn í umræðuna sem það er að reyna að fylgjast með, því að það er farið hratt yfir málin hérna.

Vinsamlegast reynið að fylgja dagskrá eða látið okkur vita með nægjanlega miklum fyrirvara ef hún breytist.