146. löggjafarþing — 77. fundur,  31. maí 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[21:27]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Mig langaði bara til þess að segja að enn einu sinni kemur hv. þingmaður Viðreisnar og lofsyngur þetta frumvarp, en kemur engan veginn til móts við þá gagnrýni sem hefur verið sett fram á það. Það væri gott að heyra eitthvað annað en lofsöng og einhver kæmi hérna upp og talaði um það sem við erum að gagnrýna varðandi frumvarpið.