147. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:52]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Þorsteinn Víglundsson) (V):

Frú forseti. Góðir landsmenn. Við upplifum nú vaxandi pólitíska ólgu í heiminum. Rótin er víðast sú sama. Aukið frelsi og opnun markaða hefur aukið velmegun. Dregið hefur úr ójöfnuði milli þjóðríkja, en á sama tíma hefur misskipting innan þjóðríkja aukist. Ójöfnuður skapar frjóan jarðveg fyrir öfgar þar sem alið er á hatri og andúð og þjóðfélagshópum egnt saman. Frelsið hefur skilað okkur miklum ávinningi, en gæta verður að því að allir njóti hans.

World Economic Forum birti á dögunum grein sem sýnir að tækifærin til að bæta stöðu sína eru mest í löndum þar sem jöfnuður ríkir. Ameríski draumurinn er nefnilega norrænn eins og hefur áður komið fram í kvöld. Norðurlöndin standa hér öðrum ríkjum framar og það er fagnaðarefni að hér á landi er tekjujöfnuður einna mestur innan OECD-ríkjanna á sama tíma og kaupmáttur er í sögulegu hámarki.

Ég er nýr í stjórnmálum, stend hér sem fulltrúi Viðreisnar, frjálslynds stjórnmálaflokks, sem stofnaður var fyrir ári. Margir keppast nú um að skilgreina okkur. Við erum jafnvel kennd við nýfrjálshyggju af sumum á vinstri vængnum og á hægri vængnum telja sumir okkur hreina sósíalista. Það endurspeglar kannski þann vanda vinstri manna að rugla saman frjálslyndi og frjálshyggju, að þekkja ekki frelsið, og birtir á sama tíma skilningsleysi hægri manna á mikilvægi almennrar velferðar. Stefna Viðreisnar er einföld; við stöndum fyrir hægri hagstjórn og vinstri velferð, klassíska norræna hugmyndafræði um sterkt velferðarkerfi á grundvelli traustrar hagstjórnar og blómlegs atvinnulífs. Ísland á að vera góður staður til að fæðast á og lifa góðu lífi. Mikilvægasta hlutverk stjórnmálanna er þess vegna að skapa samkeppnishæf lífskjör á Íslandi svo fólk sjái sér framtíð hér á landi.

Frá minni hlutanum á Alþingi heyrist nú sú gagnrýni að ekki sé nógu að gert í velferðarmálum. Veruleikinn er allt annar. Við erum að auka framlag til velferðarmála á milli ára um 30 milljarða kr. Þessar hækkanir koma til viðbótar liðlega 20 milljarða kr. hækkun á síðasta ári. Á tveimur árum munu útgjöld til velferðarmála því hafa aukist um liðlega 50 milljarða kr. Áherslan á velferð gæti ekki verið skýrari.

Hvað erum við að gera? Við vinnum að viðamiklum aðgerðum til að leysa húsnæðisvanda fólks m.a. með auknu fjármagni til uppbyggingar á ódýrum leiguíbúðum og samstarfi við sveitarfélög og byggingaraðila um leiðir til þess að lækka byggingarkostnað. Við erum að hækka greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Við erum að lögbinda notendastýrða persónulega aðstoð og stórauka stuðning til atvinnu fyrir fólk með skerta starfsgetu, svo dæmi séu nefnd. Við erum jafnframt að stórauka framlög til að taka á móti flóttamönnum sem hingað vilja leita í leit að betra lífi. Við erum hefja byggingu Landspítala, leggja aukna áherslu á geðheilbrigðismál og auka uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir eldri borgara. Síðast en ekki síst erum við að styrkja lífeyrisréttindi fyrir 35.000 eldri borgara og 18.000 öryrkja. Í þeim efnum er ekki síður mikilvægt að leggja áherslu á að öllum standi til boða að vera virkir í samfélaginu, að hver gefi til samfélagsins eins og hann er fær um og þiggi það frá samfélaginu sem hann þarf. Í því felast mikil lífsgæði.

Minni hlutinn krefst þess að enn verði aukið við og skattar verði hækkaðir umtalsvert til að fjármagna aukna samneyslu. Þessar hugmyndir eru varhugaverðar nú þegar viðvörunarljós loga í hagkerfinu. Við höfum áður staðið í þessum sporum. Við höfum áður notið ávaxta slíkrar stefnu í formi hárrar verðbólgu og hárra vaxta. Fátt vegur þyngra í útgjöldum heimilanna en vextir og verðbætur. Lágir vextir og stöðugleiki eru nefnilega líka velferðarmál fyrir fólkið í landinu.

Við í Viðreisn viljum tryggja að það samfélag sem við búum komandi kynslóðum sé í fremstu röð hvað lífsgæði varðar. Það á ekki aðeins við um öflugt velferðarkerfi og blómlegt atvinnulíf heldur ekki síður um aðra þætti sem hafa mikil áhrif á okkar daglega líf, svo sem matvælaverð, húsnæðiskost og vaxtakostnað.

Frú forseti. Góðir landsmenn. Grundvöllur þess að Ísland verði framúrskarandi samfélag felst ekki hvað síst í jöfnuði og jöfnum tækifærum, bæði fyrir þá sem hér fæðast, en einnig þá sem hingað flytja. Þau sem hingað hafa flutt að utan standa ekki síður undir velmegun okkar og velferð en við sem hér erum fædd. Við eigum að fordæma stjórnmálaöfl sem hér hafa sprottið upp og reyna nú að flokka fólk, egna fólki saman, eftir uppruna og kynþætti. Slíkur boðskapur hefur ekkert með forgang velferðarmála að gera, heldur opinberar fordóma þeirra sem þannig tala. Hlutverk okkar er hins vegar að jafna leikvöllinn, byggja hér upp samfélag þar sem allir fá notið sín án tillits til efna eða uppruna þar sem jafnréttið fær notið sín. — Góðar stundir.