fjárlög 2018.
Frú forseti. Fyrst að síðasta atriðinu. Það er auðvitað kolrangt. Það er nefnilega svo að í einkarekinni heilsugæslu hefur þjónustan aukist, framlegð hefur aukist, og þar með hafa biðlistar styst og meira að segja þjónustan batnað um leið. Þannig að þetta er hægt.
Ég segi: Auðvitað skiptir mestu máli að við tryggjum sameiginlega aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Hvort við erum síðan að tala um að ríkið, ef ég skil hv. þingmann, hann er að spyrja mig hvort ég telji að ríkið eigi að reka alla heilbrigðisþjónustu, þá er svarið þvert nei. (Gripið fram í.) Nei, þá skil ég ekki spurninguna. Hvar ætlarðu að draga mörkin? Ef hv. þingmaður er að spyrja mig hvort ég sjái fyrir mér að einkaaðilar reki Landspítala Íslands þá er svarið nei. Það er sameiginlegt verkefni okkar og ég mun aldrei sjá fyrir mér að einkaaðilar geti rekið sjúkrahús með þeirri kröfu sem við gerum til Landspítala Íslands. (BLG: Ókei.) Ég vona að þetta sé nægilega skýrt.