tilkynning um stjórnir þingflokka.
Eftirfarandi tilkynningar hafa borist um stjórnir þingflokka:
Þingflokkur Flokks fólksins: Ólafur Ísleifsson formaður, Karl Gauti Hjaltason varaformaður og Guðmundur Ingi Kristinsson ritari.
Þingflokkur Framsóknarflokksins: Þórunn Egilsdóttir formaður, Willum Þór Þórsson varaformaður og Silja Dögg Gunnarsdóttir ritari.
Þingflokkur Miðflokksins: Gunnar Bragi Sveinsson formaður, Bergþór Ólason varaformaður og Anna Kolbrún Árnadóttir ritari.
Þingflokkur Pírata: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður, Helgi Hrafn Gunnarsson varaformaður og Jón Þór Ólafsson ritari.
Þingflokkur Samfylkingarinnar: Oddný G. Harðardóttir formaður, Guðmundur Andri Thorsson varaformaður og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir ritari.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins: Birgir Ármannsson formaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varaformaður og Vilhjálmur Árnason ritari.
Þingflokkur Viðreisnar: Hanna Katrín Friðriksson formaður og Jón Steindór Valdimarsson varaformaður.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður, Kolbeinn Óttarsson Proppé varaformaður og Ólafur Þór Gunnarsson ritari.