148. löggjafarþing — 1. fundur,  14. des. 2017.

afbrigði um dagskrármál.

[16:36]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálslið 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og þeir hafi sæti næst innganginum hér í salinn, svo sem venja er og til mikils hagræðis, og dragi síðan sín í milli innbyrðis um hvert af þessum sætum þeir skipa. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir við því andmælum.

Í trausti þess að þetta yrði samþykkt hafa formenn þingflokkanna þegar dregið um sæti á milli sín á fundi með forseta í gær og eru sæti þeirra þessi: Birgir Ármannsson hlýtur sæti 2, Þórunn Egilsdóttir sæti 8, Hanna Katrín Friðriksson sæti 7, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti 13, Ólafur Ísleifsson sæti 22, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sæti 23, Oddný G. Harðardóttir sæti 44 og Gunnar Bragi Sveinsson sæti 45.

Þá hefur enn fremur orðið að samkomulagi um hvernig hluta skuli um sæti þingmanna þannig að hv. þingmenn Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson geti fengið sæti sem þeim hentar sérstaklega. Fær Inga Sæland sæti 6 og Guðmundur Ingi Kristinsson sæti 4.