148. löggjafarþing — 2. fundur,  14. des. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa níu mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri umferð og fjórar mínútur í þriðju umferð hver.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í annarri umferð og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykv. n., í annarri umferð og Guðmundur Andri Thorsson, 4. þm. Suðvest., í þriðju umferð.

Ræðumenn Miðflokksins verða í fyrstu umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust., Birgir Þórarinsson, 3. þm. Suðurk., í annarri umferð og Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðaust., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þm. Reykv. n., í annarri umferð og Ásmundur Friðriksson, 4. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Fyrir Pírata talar Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Jón Þór Ólafsson, 8. þm. Suðvest., í annarri umferð og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n., í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Flokk fólksins talar í fyrstu umferð Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., í annarri umferð Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest., Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n., í annarri og í þriðju umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s.