148. löggjafarþing — 2. fundur,  14. des. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:53]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Kæru landsmenn. Ég óska nýrri ríkisstjórn innilega til hamingju og velfarnaðar og fagna því að nú situr kona í forsæti öðru sinni. Vonandi telst það ekki til tíðinda í framtíðinni.

Það eru nokkur ágætisfyrirheit í nýjum stjórnarsáttmála, metnaðarfull markmið í loftslagsmálum, lenging fæðingarorlofs og átak í samgöngumálum svo eitthvað sé nefnt. Þá eru boðuð aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála þótt það sé mikið áhyggjuefni að bæta eigi í rekstur án þess að byggja það á varanlegum tekjum. Loks er nefnt að styrkja eigi Alþingi og ná betri samstöðu með minni hlutanum.

Fyrstu skref ríkisstjórnarinnar benda þó til lítils annars en að nú eigi allt að falla í ljúfa löð af því að nákvæmlega þessir flokkar eru í stjórn. Öllum óskum minni hlutans var hafnað en með sáttinni vísað í þverpólitískar nefndir, m.a. í stjórnarskrármálinu og um útlendingalög. Það þarf ekkert sérstakt hugmyndaflug til að átta sig á því að sú tilhögun varpar fyrst og fremst ljósi á óleystan ágreining ríkisstjórnarflokkanna.

Hæstv. forsætisráðherra freistar þess í ræðunni að réttlæta stjórnarsamstarfið og talar um óvenjulegar aðstæður, breitt samstarf, gildi málamiðlana og mikilvægi þess að skapa traust. Það sem einkum hefur skilið að þessa þrjá flokka er afstaða þeirra til skattkerfisins og viðhorf til jöfnuðar. Í stjórnarsáttmálanum felst sú málamiðlun að Vinstri græn halla sér þétt upp að Sjálfstæðisflokknum í skattamálum. Hún felst aðallega í því að gefa afslátt í baráttunni gegn ójöfnuði.

Breidd samstarfsins er stórlega orðum aukin. Þau eru fullkomlega samstiga í varðstöðu um sérhagsmuni og afturhald í málum sem þarfnast úrbóta: Um ónýtan gjaldmiðil, háa vexti, óréttlæti í sjávarútvegi, einokun í landbúnaði og úrelta stjórnarskrá. Viðhorf þeirra til sameiginlegra auðlinda almennings er svo kórónað í stjórnarsáttmálanum, með leyfi forseta:

„Eftir því sem fiskeldinu vex fiskur um hrygg þarf að ræða framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku vegna leyfisveitinga.“

Það á sem sagt að gefa takmarkaðar auðlindir áfram. Traustið sem hæstv. forsætisráðherra varð svo tíðrætt um í ræðunni er nærtækast að endurheimta með baráttu gegn þeirri spillingu, leyndarhyggju og frændhygli sem varð tveimur síðustu ríkisstjórnum að falli. Það hyggjast Vinstri græn gera með því að leiða aðalleikarana úr tveimur síðustu harmleikjum á sviðið á ný, meira eða minna í sömu hlutverkum.

Það er ekki trúverðugt, herra forseti, að fela núverandi fjármálaráðherra endurskipulagningu bankanna og láta hann sýsla með arð af ríkisfyrirtækjum. Það er kaldhæðni að hann leiði baráttu gegn skattsvikum og undanskotum. Þá eru vonbrigði að dómsmálaráðherra, sem tók flokkinn sinn fram yfir almenning í nýlegu máli er varðar uppreist æru, skuli leidd aftur til valda. Það er dapurlegt að treysta henni fyrir málefnum flóttamanna.

Nei, herra forseti, þetta samstarf mun ekki endurreisa traust á íslenskum stjórnmálum en líklega hitti hæstv. forsætisráðherra naglann á höfuðið þegar hún sagði að þetta væri svolítið óvenjuleg nálgun.

Kæru landsmenn. Samtakamáttur kvenna að undanförnu sýnir okkur skýrt að það þarf hugarfarsbyltingu í samfélaginu. Hann teiknar upp skýra og afar ógeðfellda mynd af árþúsundagamalli karlamenningu sem stendur í veginum fyrir jafnrétti kynjanna. Það er auðvitað nauðsynlegt að ráðast í stórsókn gegn kynbundnu ofbeldi en ekki síður kerfislægri niðurlægingu, mismunun og ókurteisi gegn konum sem eitrar allt daglegt líf, jafnvel án þess að við karlar gerum okkur alltaf grein fyrir því. Og eins mikilvægt og það er að konur rjúfi glerþök Alþingis og annarra valdastofnana má ekki gleyma að mörg erfiðustu og mikilvægustu störf samfélagsins, sem eru nær eingöngu unnin af konum, eru láglaunastörf. Ég nefni fiskvinnslu- og ræstingarkonur, sjúkraliða og kennara. Þetta er því miður engin tilviljun, heldur karllægt gildismat og afar skýr birtingarmynd kynjamisréttis og ójöfnuðar í samfélaginu. Á þessu fordæmalitla hagvaxtarskeiði ætti baráttan fyrir jafnrétti kynjanna og gegn hvers konar misskiptingu einmitt að vera meginviðfangsefni stjórnmálanna.

Hæstv. forsætisráðherra á það til að vitna í franska hagfræðinginn Thomas Piketty. Hann sagði, með leyfi forseta:

„Ein leið til að dreifa auðnum jafnar er að lækka skatta á stóra hópa og hækka á þá sem allra mest eiga til að misskipting auðs nái ekki hæstu hæðum.“

Þessi orð ríma prýðilega við stefnuskrá Vinstri grænna en ekki við stjórnarsáttmálann eða fjárlagafrumvarpið. Það er nauðsynlegt að styrkja innviði og almannaþjónustu. Til þess þarf þó að afla varanlegra tekna, ekki berja bara í brestina og nota afgang og arð sem eru jafn hverfulir og íslenskt veður. Á toppi hagsveiflu er besti tíminn til að auka tekjur og jafna kjörin. Það er auk þess skynsamlegt, til þess að fresta og milda næstu niðursveiflu, að lækka vexti og halda aftur af verðbólgu. Ríkisstjórnin ætlar hins vegar að setjast í sófann, éta úr ísskápnum og hirða ekki um að fara út og draga björg í bú. Henni finnst líklega nóg vera til en skilur afleiðingar eftir hjá næstu ríkisstjórn. Hækkun skatts á fjármagnstekjur mun litlu sem engu skila vegna nýrrar reiknireglu. Lækka á skatt á neðra þrepi tekjuskatts sem færir þeim tekjuhæstu þrefalt meira í vasann en öðrum á lágmarkslaunum, fólki sem getur með engu móti náð endum saman. Ríkissjóður verður af milljörðum króna í tekjur sem gætu nýst til að ráðast gegn ójöfnuði og fátækt.

Kannski birtist þó forgangsröðun ríkisstjórnarinnar með nöturlegustum hætti þegar bornar eru saman tvær setningar úr stjórnarsáttmálanum, með leyfi forseta:

„Eitt af fyrstu verkefnum ríkisstjórnarinnar verður að bregðast við vanda sauðfjárbænda til skemmri og lengri tíma.“

Og aðeins síðar:

„Gerð verður úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, tillögur til úrbóta settar fram og þeim fylgt eftir. Sérstaklega þarf að huga að stöðu barna sem búa við fátækt …“

Hæstv. ríkisstjórn. Það er hægt að hefjast strax handa til að bæta hag fátækra barna. Úttekt má hins vegar vel gera samhliða. Við vitum nákvæmlega hvar skórinn kreppir og þekkjum vel leiðir til að losa um hann. Hækka þarf barna- og vaxtabætur ásamt grunnlífeyri aldraðra og öryrkja. Lítið er minnst á þetta í stjórnarsáttmálanum og engar hækkanir í fjárlögum. Hið sama á við um innflytjendur og fólk á flótta. Umfram allt verður að ráðast í stórátak í húsnæðismálum. Því miður snýr umfjöllun ríkisstjórnarinnar helst að því að þrengja lánamöguleika ungs fólks.

Herra forseti. Bilið milli fátækra og ríkra mun halda áfram að aukast undir forsæti sósíalista. Einhvern tímann hefðu það þótt tíðindi.

Kæru landsmenn. Hæstv. forsætisráðherra segir að í augum alþjóðasamfélagsins séum við fyrirmyndarþjóðfélag að mörgu leyti og að við eigum að gleðjast yfir því þegar vel gengur. Það er hárrétt og þó að það sé vafalaust rétt að allir hafi það nokkuð gott að meðaltali birtist daglega óhuggulegur ójöfnuður, líka á Íslandi. Eldri hjón sitja fyrir framan arineld í rándýru einbýlishúsi og skrifa jólakort meðan gömul kona hírist í kjallaraholu og veltir því fyrir sér hvort hún hafi ráð á því að greiða rafmagnsreikning eða eigi að fara til læknis. Miðaldra kall sankar að sér íbúðum til að leigja á gróðavæddum skortmarkaði meðan annar heldur upp á fimmtugsafmælið sitt í húsbíl í Laugardal og vonar að nóttin verði ekki köld. Útsjónarsamur auðkýfingur andar léttar í lok dags eftir að hafa komið peningum fyrir á Panama en lítill strákur fær ekki bestu mögulegu lyf vegna þess að það vantar tugi milljarða króna inn í samneysluna. Ung fjölskylda með börn situr í þotu á leið til Þýskalands í jólaferð. Fáum sætum aftar ungur maður, veik ófrísk kona og lítið barn þeirra á leið burt úr öryggi út í óvissuna vegna þess að Ísland hefur ekki tök á því að veita þeim skjól. Og lítill strákur fer að sofa á Þorláksmessukvöld fullur tilhlökkunar. Hann er sannfærður um að Kertasníkir verður rausnarlegur morguninn eftir og vonast svo eftir leikjatölvu í jólagjöf. Bekkjarfélagi hans skríður upp í rúmið sitt á sama tíma, veit að hann fær ekkert í skóinn og sofnar með kvíðatilfinningu vegna jólanna.

Kæru landsmenn. Við getum gert miklu betur en þetta. — Góða aðventu.